Annar fanginn fundinn

Fanginn fannst í Reykjavík og verður fluttur á Litla-Hraun.
Fanginn fannst í Reykjavík og verður fluttur á Litla-Hraun. mbl.is/Brynjar Gauti

Annar fanginn sem strauk úr fangelsinu að Sogni í gær er kominn í hendur lögreglu. Hann mun halda áfram afplánun sinni í fangelsinu að Litla-Hrauni.

Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður fangelsanna tveggja, staðfesti þetta í samtali við mbl.is en RÚV greindi fyrst frá málinu.

Fanginn fannst í Reykjavík. Áfram er leitað að hinum fanganum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi struku mennirnir saman frá Sogni en ekki liggur fyrir hvað þeir höfðu fyrir stafni eftir það. 

Frétt mbl.is: Fangarnir enn ófundnir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert