Ekkert flogið innanlands

Allt innanlandsflug liggur niðri og hjá Flugfélagi Íslands verður næst athugað með flug í hádeginu. Hjá flugfélaginu Erni er næsta athugun á níunda tímanum. Röskun verður á akstri strætisvagna vegna veðurs.

Ferðir strætisvagna falla niður á Ísafirði í dag vegna mikillar hálku og hvassviðris.

Hjá Strætó mun ferðin klukkan 9 til Akureyrar aðeins aka að Bifröst.

Leið 57. Ferðin 10:15 frá Akureyri fellur niður vegna veðurs.

Leið 79 Ferðin 6:30 frá Húsavík og 8:27 frá Akureyri falla niður vegna veðurs.

Leið 78 Ferðin 6:40 frá Siglufirði og 8:15 frá Akureyri falla niður vegna veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert