Flutningabíll fauk útaf

Flutningabíllinn sem fór útaf í Kræklingahlíð í morgun
Flutningabíllinn sem fór útaf í Kræklingahlíð í morgun mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Flutningabíll fauk út af veginum norðan við Akureyri, í Kræklingahlíð, um hálf fimm leytið í nótt, að sögn varðstjóra í lögreglunni á Akureyri. Ökumaðurinn, sem var einn á ferð, slapp ómeiddur og ekki varð tjón á farmi bílsins. 

Hvasst hefur verið fyrir norðan í nótt en það fór mest í 19 metra á sekúndu á Akureyri í hviðum. Aftur á móti er oft hvass vindur niður Glerárdalinn og því vindasamt í Kræklingahlíð þar sem óhappið varð í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert