Rafmagnslaust á Kjalarnesi

Kjalarnes.
Kjalarnes. © Mats Wibe Lund

Rafmagnslaust er á Kjalarnesi þessa stundina. Starfsmaður á bakvakt Veita staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Tilkynnt var að blossi hefði sést stuttu áður en rafmagnið fór af og er búið að senda mannskap af stað til að skoða bilunina.

Ekki er hægt að svara að svo stöddu um hvers konar bilun sé að ræða eða í hve langan tíma verður rafmagnslaust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert