Steinunn skipuð skrifstofustjóri

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir Umhverfisráðuneytið

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að skipa Steinunni Fjólu Sigurðardóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfis og skipulags í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Hæfnisnefnd sem skipuð var af ráðherra til að meta hæfni umsækjenda taldi Steinunni Fjólu hæfasta til að gegna embættinu. Fimm umsækjendur voru um embættið.  

Steinunn Fjóla er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur öðlast lögmannsréttindi. Hún hefur starfað í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu frá 2008, var staðgengill skrifstofustjóra og hefur verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfis og skipulags frá 2014. Áður starfaði Steinunn Fjóla meðal annars hjá sýslumanninum á Selfossi.

Steinunn er gift Erni Einarssyni framkvæmdastjóra og eiga þau tvö börn.

Hæfnisnefndina skipuðu Helga Hauksdóttir, mannauðsstjóri í utanríkisráðuneyti, formaður, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri  í forsætisráðuneyti og Sigrún Traustadóttir, viðskiptafræðingur.

Steinunn Fjóla er skipuð í embættið frá 1. mars næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert