Fastir á ísjaka í Jökulsárlóni

Ferðamenn á ísjökum í Jökulsárlóni fyrir skömmu.
Ferðamenn á ísjökum í Jökulsárlóni fyrir skömmu. Ljósmynd/Gylfi Blöndal

Björgunarfélag Hornafjarðar hefur verið kallað að Jökulsárlóni þar sem fjöldi ferðalanga er í vandræðum. Samkvæmt fyrstu fréttum af staðnum eru 40-50 ferðamenn á jaka sem rekið hefur frá landi og þurfa aðstoð við að komast á þurrt.

Ekki er talið að fólkið sé í bráðri hættu sem stendur. Nokkrar mínútur eru þar til björgunarsveitin kemur á staðinn, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. 

Beiðni um aðstoð barst kl. 14.53 í gegnum Neyðarlínuna. 

Frétt mbl.is: Heimatilbúið viðvörunarskilti við lónið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert