Maðurinn við Móabarð tengist kynferðisbrotarannsókn

mbl.is/Þórður

Karlmaður, sem var á ferð við Móabarð í Hafnarfirði á mánudagsmorguninn og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað upplýsinga um, tengist rannsókn ofbeldis- og kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Þetta staðfestir Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður deildarinnar, sem vildi ekki veita upplýsingar um málið að öðru leyti.

Samkvæmt frétt Vísis.is er maðurinn grunaður um að hafa ráðist á konu sem var ein heima með ungt barn á mánudagsmorguninn. Mbl.is hefur heimildir fyrir því að maðurinn hafi villt á sér heimildir með því að segjast vera á vegum orkufyrirtækis og þyrfti að lesa af mælum. Þannig hafi hann komist inn til konunnar og brotið á henni.

Árni segist ekki geta tjáð sig um þetta vegna rannsóknarhagsmuna.

Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsti eftir upplýsingum um manninn í gær. Þar segir m.a. að hann sé um 180 sm á hæð og föl­leit­ur, dökklædd­ur og með svarta húfu og svarta hanska. Hann er tal­inn vera á aldr­in­um 35 – 45 ára.

Þeir sem geta veitt upp­lýs­ing­ar um mann­inn og ferðir hans eru vin­sam­leg­ast beðnir um að hafa sam­band við lög­reglu á skrif­stofu­tíma í síma 444 1000, en upp­lýs­ing­um má einnig koma á fram­færi á net­fangið abend­ing@lrh.is eða í einka­skila­boðum á fés­bók­arsíðu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert