Verksmiðjan á Hjalteyri hlýtur Eyrarrósina

Frá vinstri: Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri …
Frá vinstri: Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, Herdís Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, Kristín Jóhannsdóttir, forstöðukona Eldheima, Mireya Samper, stjórnandi Ferskra vinda, Gústav Geir Bollason, einn af stofnendum Verksmiðjunnar, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings og Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Listahátíðar í Reykjavík. mbl.is/Alfons

Verksmiðjan á Hjalteyri er handhafi Eyrarrósarinnar í ár en hún er árlega veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Aðstandendur Verksmiðjunnar veittu viðurkenningunni móttöku við athöfn í Frystiklefanum á Rifi í dag.

Í tilkynningu segir að Verksmiðjan á Hjalteyri sé listamiðstöð með sýningarsali og gestavinnustofur í gamalli síldarverksmiðju Kveldúlfs við Eyjafjörð.

„Frá því að nokkrir frumkvöðlar og listamenn tóku sig saman og stofnuðu Verksmiðjuna árið 2008 hefur þar verið haldið úti framsæknu myndlistar- og menningarstarfi. Aðstandendur Verksmiðjunnar þykja vel að verðlaununum komnir, ekki síst fyrir þrautseigju, hugmyndaauðgi og útsjónarsemi við flókin rekstrarskilyrði, en starf Verksmiðjunnar hefur eflst mjög frá stofnun og tekið á sig óvæntar myndir.“

Hlýtur fjárstyrk og flugmiða

Í Verksmiðjunni þykir hafa tekist vel til með þá grundvallarhugmynd að listin sé ekki einungis til sýnis í Verksmiðjunni, heldur verði hún þar til og sé því mótuð af aðstæðum.

Verðlaunin sem Verksmiðjan hlýtur er fjárstyrkur að upphæð 1.650.000 auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Forsvarsmenn alþjóðlegu listahátíðarinnar Ferskra vinda í Garði og Eldheima í Vestmannaeyjum, sem einnig voru tilnefnd, tóku hvort um sig við 300 þúsund króna fjárstyrk, auk flugmiða.

Til stóð að Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti verðlaunin, en hún hefur verið verndari Eyrarrósarinnar frá upphafi, eða í tólf ár. Hún forfallaðist vegna veikinda og því afhenti Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Listahátíðar í Reykjavík, verðlaunin fyrir hönd forsetafrúarinnar. Bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Kristinn Jónasson, ávarpaði samkomuna og það gerði einnig Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Einnig voru viðstaddir fulltrúar Byggðastofnunar, Flugfélags Íslands og Listahátíðar í Reykjavík, sem standa sameiginlega að viðurkenningunni, auk annarra góðra gesta.“

Mörg verkefnin vakið verðskuldaða athygli

Eyrarrósin var fyrst afhent árið 2005 og féll þá í hlut Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði. Að sögn aðstandenda hafa mörg þeirra menningarverkefna sem hlotið hafa Eyrarrósina vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Þeirra á meðal eru LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi, Rokkhátíð alþýðunnar – Aldrei fór ég suður og Bræðslan á Borgarfirði eystra.

Sú hefð hefur skapast á undanförnum árum að verðlaunaafhendingin fari fram í höfuðstöðvum verðlaunahafa síðasta árs. Sami háttur var hafður á nú og því voru verðlaunin veitt í Frystiklefanum á Rifi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert