Bíl stolið meðan hann var affermdur

mbl.is/Eggert

Bifreið var stolið á Óðinsgötu á fjórða tímanum í dag meðan verið var að afferma hana. Um er að ræða sendibifreið með númerið GUY97. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.

Þá var tvívegis tilkynnt um þjófnað í verslun og rétt eftir hádegi var tilkynnt um tilraun til innbrots í bifreið og eignarspjöll. 

Þá kom lögreglan í Kópavogi að bifreið sem var illa staðsett á Fífuhvammsvegi með sprungið dekk. Segir í dagbókinni að ökumaður sé grunaður um ölvun og hafi verið færður á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert