Einn með 2 milljónir í Jóker

Eurojackpot lottó
Eurojackpot lottó AFP

Enginn var með allar tölurnar réttar í Eurojackpot í kvöld. Fyrsti vinningur hljóðaði upp á 3,5 milljarða króna. Einn Dani var aftur á móti með annan vinning og fær hann 169 milljónir í sinn hlut.

Tveir spilarar voru með þriðja vinning sem hljóðaði upp á 30 milljónir á mann. Eru spilararnir frá Finnlandi og Þýskalandi.

Í Jókernum var einn íslenskur spilari með allar tölurnar réttar og fékk hann 2 milljónir. Þá var einn spilari hér á landi sem fékk annan vinning í Jókernum og fær hann 100 þúsund krónur í sinn hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert