„Engin haldbær rök eru fyrir þessari ákvörðun“

Laugarvatn
Laugarvatn mbl.is/Sigurður Bogi

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir harðlega ákvörðun Háskóla Íslands að færa nám í íþrótta- og heilsufræði frá Laugarvatni til Reykjavíkur. Með þessari ákvörðun er Háskóli Íslands að bregðast því trausti að vera háskóli allra landsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarstjórninni.

Segir þar að það sé óskiljanlegt að Háskóli Íslands vilji ekki fara í öfluga og markvissa markaðssetningu á námi í íþrótta- og heilsufræði til að fjölga nemendum eins og starfsmenn skólans, nemendur, þingmenn og sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafa ítrekað lagt til.

Segir sveitarstjórnin að flutningur starfseminnar til Reykjavíkur muni ekki leysa þann vanda sem við er að etja. „Það læðist að okkur sá grunur að aðrar ástæður en staðsetning, hagræðing rekstrar og fækkun nemenda séu ástæða þessarar ákvörðunar. Engin haldbær rök eru fyrir þessari ákvörðun háskólaráðs enda hefur allt ferlið í kringum þessa ákvarðanatöku verið með undarlegasta móti,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að í huga sveitarstjórnarmanna sé þetta hápólitískt byggðamál sem varðar spurninguna hvernig við viljum að landið okkar byggist upp í framtíðinni. Er spurt hvort stefnan sé sett á að sérhæfð störf sem krefjast menntunar verði á höfuðborgarsvæðinu á meðan landsbyggðin eigi að búa við einsleitni og lágt menntunarstig. Að störf á landsbyggðinni miðist eingöngu við grunnatvinnuvegina og ferðaþjónustu. „Það  er varhugaverð þróun,“ segir í tilkynningunni.

Gagnrýnir sveitarstjórnin það sem eru kallaðar óljósar mótvægisaðgerðir og segir að það séu oftar en ekki skyndilausnir sem haldi ekki til lengdar. Skorað er á stjórnendur Háskóla Íslands að endurskoða þessa ákvörðun sína. „Einnig trúum við því að þingmenn og ráðherra mennta- og menningarmála hafi ekki sagt sitt síðasta orð í þessu máli. Að okkar mati er mjög mikilvægt fyrir þjóðina sem heild að stuðlað sé að fjölbreytni í atvinnutækifærum og menntun um allt land en ekki bara á höfuðborgarsvæðinu,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert