Flutningabíll hafnaði utan vegar

Maðurinn komst sjálfur út úr bílnum.
Maðurinn komst sjálfur út úr bílnum. Helgi Bjarnason

Um fjörtíu tonna flutningabíll hafnaði utan vegar í Fljótunum í austanverðum Skagafirði á sjöunda tímanum í dag. Bílstjórinn komst sjálfur út úr bílnum en ekki er vitað hvort hann hlaut meiðsli við slysið. Sjúkrabíll var sendur á vettvang ásamt lögreglu.

Mikið hefur verið að gera í sjúkraflutningum hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag en rúmlega áttatíu manns hafa verið fluttir frá klukkan hálf átta í morgun. Rúmlega fjórðungur flutninganna var vegna bráðatilvika og er það heldur hærra hlutfall en að jafnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert