Alvarlegt slys í Víkurskarði

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Alvarlegt umferðarslys varð á tíunda tímanum á hringveginum ofan við Vatnsleysu í Fnjóskadal. Tveir slösuðust í árekstri snjóruðningstækis og fólksbíls en hvorugur er í lífshættu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og slökkviliðinu á Akureyri varð slysið klukkan 21:20 og fóru tveir lögreglubílar og tveir sjúkrabílar frá Akureyri auk slökkvibifreiðar með klippubúnað. Jafnframt var tækjabíll slökkviliði Þingeyjasveitar á Laugum í Reykjadal kallaður út. 

Búið er að flytja annan manninn á Sjúkrahúsið á Akureyri og verið er að flytja hinn manninn þangað með sjúkrabifreið. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl þeirra eru á þessari stundu en hvorugur er talinn vera með lífshættulega áverka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert