Ekki slösuð heldur ölvuð

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan fór með konu á bráðamóttöku Landspítalans á fimmta tímanum í nótt en tilkynnt hafði verið um konuna þar sem hún lá meðvitundarlaus á gangstétt í miðborginni.

Læknisrannsókn leiddi í ljós að konan var ekki slösuð heldur ofurölvi og gistir hún fangageymslu lögreglunnar þangað til af henni rennur.

Um níu leytið í gærkvöldi hafði lögreglan afskipti af manni í Hafnarfirði vegna vörslu fíkniefna og á fimmta tímanum var ölvaður maður handtekinn í Mosfellsbæ grunaður um eignaspjöll og fleiri brot. Hann gistir fangageymslu lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert