Holtavörðuheiði enn lokuð

mbl.is/Björn Jóhann

Lokað er á Holtavörðuheiði og austur yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi. Einnig er lokað um Fjarðarheiði.

Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði en hálka er á Sandskeiði og í Þrengslum en annars er hálka eða hálkublettir á Suðurlandi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Hálka eða hálkublettir eru víða á Vesturlandi en þó er lokað um Holtavörðuheiði. Á Snæfellsnesi er ófært yfir Fróðárheiði.

Á Norðurlandi er ófært á Þverárfjalli og Fljótsheiði eins er ófært á Hálsum, Hólaheiði og Brekknaheiði en þungfært er á Sandvíkurheiði.

Á  Vestfjörðum er hálka og snjóþekja og sumstaðar þæfingur. Ófært er á Klettsháls og Þröskuldum.

Á Austurlandi er lokað um Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði en ófært er um Vatnsskarð eystra. Þungfært og skafrenningur er á Fagradal,  Autt er víða með suðaustur ströndinni en þó eru hálkublettir á köflum og jafnvel skafrenningur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert