Getur haft þungbærar og langvarandi afleiðingar

Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Átta félagasamtök hafa sent frá sér ályktun þar sem tekið er heilshugar undir niðurstöðu nýútkominnar skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Um er að ræða ADHD samtökin, Barnaheill, Einstök börn, Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð, Átak, félag fólks með þroskahömlun, Einhverfusamtökin, Þroskahjálp og Umhyggja. 

Í skýrslunni er undirstrikuð sú alvarlega staða sem uppi er og hefur verið um langa hríð.

Fyrri frétt mbl.is: Óviðunandi bið eftir þjónustu

Að mati Ríkisendurskoðunar er sá langi biðtími sem hefur einkennt geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga óviðunandi. Auk þess að ganga gegn lögbundnum skyldum ríkisins stefnir þessi bið bæði langtímahagsmunum þess og velferð borgaranna í tvísýnu. Ef ekki er tekið á markvissan hátt á geðheilsuvanda barna og unglinga um leið og hans verður vart aukast til muna líkur þess að þungbærar og langvarandi afleiðingar, jafnvel örorka, komi síðar fram.

„Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að stjórnvöld hafi ótvíræðar skyldur þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Lög um heilbrigðisþjónustu, lög um réttindi sjúklinga, lög um málefni fatlaðs fólks og Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, tryggja börnum og unglingum rétt til eins fullkominnar heilbrigðisþjónustu og tök eru á að veita og fela stjórnvöldum þá skyldu að sjá þeim fyrir þeirri umönnun sem velferð þeirra krefst.

Seint verður undirstrikað mikilvægi snemmtækrar íhlutunar á grunnstigi og hver beinn fjárhagslegur ávinningur hlýst af henni. Ótalin eru þá þau áhrif sem aðgerðaleysi hefur óhjákvæmilega á þann sem þjónustuna skortir og alla sem að honum standa,“ segir í skýrslunni.

Félagasamtökin skora á stjórnvöld að bregðast nú þegar við athugasemdum sem fram eru settar í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

„Frjáls félagasamtök hafa til fjölda ára, ítrekað vakið athygli á ástandinu og afleiðingum aðgerðaleysis.

Nú er lag til að láta verkin tala og treysta undirrituð því að ráðamenn sýni skilning sinn í verki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert