Japansfrysting hafin og kolmunna landað

Norska skipið Norderveg að landa kolmunna í Neskaupstað.
Norska skipið Norderveg að landa kolmunna í Neskaupstað. mynd/Hákon Ernuson

Japansfrysting er hafin í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Hrognafylling loðnunnar er nægjanleg til að unnt sé að frysta hana fyrir Japansmarkað.

Beitir NK kom í gær með 820 tonn af loðnu og er verið að frysta úr honum núna. Vilhelm Þorsteinsson EA kom í morgun með fullfermi af frystri loðnu. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar.

Í nótt kom norska skipið Norderveg til Neskaupstaðar með 2300 tonn af kolmunna og er verið að landa úr því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert