Eyða meiri tíma með foreldrum

Fleiri börn eyða tíma með foreldrum sínum um helgar.
Fleiri börn eyða tíma með foreldrum sínum um helgar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýbirtir Félagsvísar sýna afgerandi þróun þess efnis að börn og foreldrar verja æ meiri tíma saman. Þetta kemur fram á vef Velferðarráðuneytisins. 

Þar segir frá því að árið 2014 sögðust 63% barna á aldrinum 14 – 15 ára verja tíma sínum oft eða nær alltaf með foreldrum sínum um helgar samanborið við tæplega 37% barna árið 2006.

„Sama þróun sést þar sem spurt var um tengsl við foreldra utan skóla, virka daga. Árið 2014 sagðist helmingur barna á aldrinum 14 til fimmtán ára vera oft eða nær alltaf í tengslum við foreldra sína utan skóla á virkum dögum samanborið við tæp 33% árið 2006.“

Í frétt Velferðarráðuneytisins er einnig bent á að mun hærra hlutfall barna á aldrinum 14 – 15 ára stundaði íþróttir reglulega árið 2014 (39%) en gerði það árið 2006 (31,8%).

Auk þess hefur börnum sem segjast reykja eina eða fleiri sígarettur á dag fækkað til muna á síðustu árum. Árið 2006 sögðust 12% 15 ára barna reykja eina eða fleiri sígarettur á dag en þetta hlutfall var komið niður í 2,5% árið 2015.

„Ölvun meðal barna er einnig orðin mun fátíðari en áður. Árið 2006 sögðust 26% 15 ára  barna hafa orðið ölvuð síðustu 30 daga en árið 2015 var hlutfallið komið niður í 4,6%. Þegar spurt var um hassneyslu sögðust 9% 15 ára barna hafa notað hass einu sinni eða oftar um ævina þegar um það var spurt árið 2006, á móti 3,3% barna á sama aldri árið 2015.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert