Ferðamenn sækja í bjórinn

Bruggsmiðjan á Árskógssandi, sem framleiðir Kalda, hyggst opna bjórspa líkt …
Bruggsmiðjan á Árskógssandi, sem framleiðir Kalda, hyggst opna bjórspa líkt og þetta í haust.

Mikil gerjun á sér stað í brugghúsum og bjórmenningu landsins, í orðsins fyllstu merkingu. Á skömmum tíma hefur litlum brugghúsum fjölgað og þau sem fyrir eru leggja sífellt meiri áherslu á að kynna sína framleiðslu fyrir ferðamönnum. Sköpuð hefur verið aðstaða í brugghúsunum til að taka á móti gestum og íslenskar ferðaskrifstofur eru farnar að skipuleggja sérstakar bjórferðir fyrir ferðamenn. Nokkur vísir er því kominn að bjórferðamennsku, sem löng hefð er fyrir erlendis í tengslum við brugghús og stórar bjórhátíðir.

Dreifist um landið

Á annan tug brugghúsa er starfandi í flestum landshlutum hér á landi, allt frá stórum aðilum eins og Ölgerðinni og Vífilfelli til lítilla brugghúsa, svonefndra örbrugghúsa. Þá er vitað um nokkra áhugasama aðila með svipuð áform, m.a. tvö félög á Austurlandi. Dreifing þessara brugghúsa um landið sést nánar á meðfylgjandi korti. Ný brugghús eru komin í gang á Siglufirði; Segull 67, og í Vestmannaeyjum; Brothers Brewery, og tvö í Reykjavík; Hún/Hann brugghús í húsnæði Matís í Grafarholti og Bryggjan brugghús við Grandagarð.

Aðilar á Ísafirði höfðu uppi áform um að stofna þar brugghús en ekkert hefur orðið af því ennþá. Miðað við síðustu fréttir gæti staðan hins vegar farið að breytast á Austurlandi. Þar hófst bruggun á bjórnum El Grillo á Seyðisfirði fyrir nokkrum árum en Ölgerðin tók síðan að sér bruggunina. Hið austfirska bruggfélag hefur verið stofnað á Breiðdalsvík og þar er áformað að opna brugghús næsta haust. Áhugasamir aðilar á Héraði hafa verið að safna fjármagni til að stofna brugghúsið Austra í Fellabæ. Vonir stóðu til að byrja á síðasta ári en það mun eitthvað tefjast.

Bjórferðamennskan er stunduð af kappi í höfuðborginni. Nokkrum sinnum í viku koma t.d. hópar ferðamanna í skoðunarferðir í Gestastofu Ölgerðarinnar þar sem þeim gefst kostur á fróðleik og kynningu á íslenskri sögu og menningu tengt bjór og víni. Taste the Saga nefnast skoðunarferðirnar og hafa þær gefið góða raun, segir Jarþrúður Ásmundsdóttir, forstöðumaður Gestastofunnar, en þar fer einnig fram kennsla í Bjór- og Vínskóla Ölgerðarinnar.

Ferðamenn eru farnir að sýna íslenskum bjór aukinn áhuga og …
Ferðamenn eru farnir að sýna íslenskum bjór aukinn áhuga og vilja kynna sér starfsemi brugghúsanna hér á landi, m.a. á námskeiðum. mbl.is/Styrmir Kári

15 þúsund hafa útskrifast

Þangað komu um 3.000 erlendir ferðamenn í fyrra og um 7.000 þátttakendur voru í um 400 námskeiðum á vegum Gestastofunnar, sem fagnaði nýverið sex ára afmæli sínu. Frá upphafi hafa ríflega 15 þúsund nemendur verið útskrifaðir úr Bjórskólanum, eru þá erlendir ferðamenn ekki taldir með.

Saga litlu brugghúsanna er ekki nema um 10 ára gömul. Bruggsmiðjan á Árskógssandi reið á vaðið 2005, þegar framleiðsla á Kalda hófst. Síðan þá hefur brugghúsið stækkað ár frá ári og er orðið stærst á eftir Ölgerðinni og Vífilfelli. Framleiðslan byrjaði í 160 þúsund lítrum á ári en er núna komin í um 650 þúsund lítra.

Árlega er tekið á móti 11-12 þúsund gestum í brugghúsinu á Árskógssandi. Sigurður Bragi Ólafsson, yfirbruggari og sonur stofnendanna Agnesar Sigurðardóttur og Ólafs Þrastar Ólafssonar, segir þessar móttökur stóran hluta af starfseminni. Bara í janúar sl. komu um 1.000 gestir að skoða, að stórum hluta erlendir ferðamenn.

Nú ráðgerir fyrirtækið að auka þjónustuna og opna bjór-spa í lok sumars, að tékkneskri fyrirmynd, þar sem hægt verður að fara í bjórbað og nudd og slökun á eftir. Reisa á 300 fermetra bjálkahús undir starfsemina, skammt frá brugghúsinu.

Ölgerðin hefur frá 2009 rekið Bjórskólann í húsakynnum sínum og …
Ölgerðin hefur frá 2009 rekið Bjórskólann í húsakynnum sínum og einni er árlega tekið á móti þúsundum erlendra ferðamanna. mynd/Ölgerðin

Heilsulind með bjór

„Þetta verður heilsulind þar sem meðferðin gengur út á bjór,“ segir Sigurður en bjórinn er talinn mjög hollur fyrir húðina, sér í lagi þá sem eru með húðofnæmi, psoriasis og aðra slíka húðsjúkdóma. Einnig geta gestir fengið að drekka bjór úr krönum við hliðina á pottum fullum af ósíuðum bjór, sem fellur til í framleiðslunni, og baðvatni. Til að byrja með verður baðpláss fyrir 12 manns í sex pottum.

„Við verðum með sérstakt lúxusherbergi fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig og einnig sérstakt slökunarherbergi. Síðan verða að líða fjórir tímar þar til fólk getur farið í sturtu eftir bjórbaðið,“ segir Sigurður. Jafnframt verður veitingasala í heilsulindinni en til greina kemur að hafa gistiaðstöðu síðar meir ef eftirspurn skapast.

Kalda-bar er rekinn í Reykjavík af öðrum aðilum, en í samstarfi við Bruggsmiðjuna og að mestu seldur þar Kalda-bjór. Fjölskyldan á Árskógssandi rak einnig bar á Akureyri um tíma, Brugghúsbarinn, en seldi hann.

Bjóráhugamenn eru farnir að sækja íslenskar bjórhátíðir, en ein slík fer núna fram í Reykjavík um helgina á vegum Kex Hostels. Önnur bjórhátíð hefur fest sig í sessi meðal bjóráhugamanna, sem Bjórsetur Íslands á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði stendur fyrir fyrstu helgina í júní hvert ár. Þar koma saman allir helstu bjórnördar landsins og einnig frá útlöndum. Þannig er von á 10-20 Kanadamönnum á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Lamb-Inn Travel á Öngulsstöðum í Eyjafirði. Karl Jónsson hjá Lamb-Inn segir Kanadamennina koma hingað til að upplifa íslenska náttúru og menningu, með áherslu á að kynna sér bjór frá litlu brugghúsunum. Ferðin er í samstarfi við Beer Lovers Tour í Toronto og ferðaskrifstofuna Merit Travel. Þá er Lamb-Inn Travel með í undirbúningi skipulagðar dagsferðir um Tröllaskaga, með viðkomu í Bruggsmiðjunni á Árskógssandi, brugghúsinu Segull 67 á Siglufirði, á Bjórsetrinu á Hólum, brugghúsi Gæðings í Útvík skammt frá Sauðárkróki og loks í Víking ölgerð Vífilfells á Akureyri.

Nóg er að gera hjá helstu bjórveitingahúsum í borginni, m.a. …
Nóg er að gera hjá helstu bjórveitingahúsum í borginni, m.a. Microbar við Vesturgötu 2. mbl.is/Björn Jóhann

Safna miðum og töppum

„Það er alltaf aðsókn í heimsókn til okkar, sérstaklega hópar sem koma á vorin. Mest eru þetta Íslendingar en einnig hópar erlendra ferðamanna,“ segir Árni Hafstað, eigandi Gæðings brugghúss, sem einnig rekur Microbar í Reykjavík og á Sauðárkróki. Brugghúsið fagnar fimm ára afmæli á þessu ári.

Árna líst vel á áform um skipulagðar kynningarferðir um Tröllaskaga. Skagafjörður sé ekki stórt ferðamannasvæði en þetta geti verið hluti af slíkri uppbyggingu.

„Erlendir ferðamenn eru tíðir gestir á Microbar og þar erum við bæði að kynna okkar framleiðslu og annarra íslenskra brugghúsa, auk úrvals af erlendum bjór. Við fáum einnig töluvert af fyrirspurnum frá útlöndum, þar sem bjóráhugamenn eru t.d. að safna miðum eða töppum og spyrja hvar hægt sé að nálgast íslenskan bjór í útlöndum,“ segir Árni.

Bjórsetur Íslands er eitt þessara örbrugghúsa sem brugga sinn eigin bjór en stendur aðallega fyrir kynningu á bjórtegundum hvaðanæva.

Markaðurinn er til staðar

„Við höfum tekið á móti hópum í kynningar og smökkun og einnig verið með námskeið. Erlendir ferðamenn hafa einnig gert sér sérstaka ferð til Hóla,“ segir Bjarni Kristófer Kristjánsson, einn forsprakka Bjórsetursins.

Bjórhátíðinni á Hólum hefur sem fyrr segir vaxið fiskur um hrygg. Bjarni segir það enga spurningu að markaður sé fyrir bjórferðamennsku á Íslandi. Margir séu komnir með lítil brugghús og fjölbreytnin mikil. „Við höfum farið héðan nokkrum sinnum í sérstök bjórferðalög til útlanda og það er stór hópur fólks sem sækir í slíkar ferðir víða um heim,“ segir Bjarni.

Brugghús Steðja í Borgarfirði er á fjölsóttu ferðamannasvæði og Dagbjartur Arilíusson, framkvæmdastjóri Steðja og annar eigenda, segir móttöku ferðamanna vera ört vaxandi hluta af starfseminni.

Steðji með stærri aðstöðu

„Við gerum orðið töluvert af því að fá til okkar hópa ferðamanna. Þeir skipta orðið nokkrum þúsundum yfir árið,“ segir Dagbjartur en Steðji hefur verið að stækka aðstöðuna í brugghúsinu til að geta tekið á móti fleirum. Vonast hann til að aðstaðan verði tilbúin með vorinu.

„Hingað koma líka vinnustaðahópar í skemmtiferð eða árshátíðarferð, einnig erlendir ferðamenn á leið í Húsafell og á Langjökul. Þetta hefur mikið að segja fyrir okkur. Við megum ekki auglýsa bjórinn en svona kynningar og heimsóknir hafa mikil áhrif. Þær styrkja líka innviði ferðaþjónustunnar á svæðinu,“ segir Dagbjartur en auk þess að kynna bjórinn frá Steðja kaupa ferðamenn einnig minjagripi. Þá hafa þeir sýnt hvalabjórnum mikinn áhuga og spurt mikið um hann.

Eitt nýjasta brugghúsið er Segull 67 á Siglufirði. Marteinn Haraldsson bruggmeistari segir reksturinn fara mjög vel af stað og viðtökur hafa verið góðar. Stefnan hefur verið tekin á að koma tveimur heilsársbjórum inn í verslanir ÁTVR á næstunni og einnig að brugga árstíðabundna bjóra.

Marteinn segir fjölda ferðamanna fara um Siglufjörð og ætlunin sé að kynna bjórinn fyrir þeim. „Aðallega höfum við verið að taka á móti Íslendingum. Við fengum marga hópa til okkar í desember og traffíkin er að fara aftur af stað eftir áramótin,“ segir hann en móttökusalur og bar er í brugghúsinu, til að taka á móti gestum.

Nýir eigendur eru teknir við rekstri brugghússins í Ölvisholti í Flóahreppi en bruggmeistarinn er áfram sá sami. Bragi Hinrik Magnússon rekstrarstjóri segir það vera í undirbúningi að setja upp betri aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum, enda komi oft beiðnir um kynningar og móttöku. „Þetta er sveitabrugghús og við viljum halda í sveitastemninguna. Við ætlum okkur að gefa ferðamönnum og heimamönnum færi á að kynna sér afurðir okkar,“ segir Bragi.

Námskeið fyrir ferðamenn

Bryggjan Brugghús við Grandagarð er jafnframt veitingahús. Þar innandyra er bruggaður bjór og seldur á staðnum. Elvar Ingimarsson rekstrarstjóri segir stefnt að því að tappa bjórnum á flöskur og koma í vínbúðirnar. „Við opnuðum fyrir þremur mánuðum og viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Langflestir gestir eru Íslendingar en straumur erlendra ferðamanna er að aukast,“ segir Elvar en Bryggjan brugghús starfrækir einnig bjórskóla. Á miðvikudögum kl. 18 er námskeið fyrir Íslendinga og kl. 20 fyrir útlendinga, þar sem kennt er á nokkrum tungumálum. Elvar segir námskeiðin sæta auknum vinsældum, ekki síst meðal ferðamanna, sem bóka sig í gegnum ferðaskrifstofur og hótel.

Bryggjan brugghús ætlar að halda upp á 27 ára afmæli bjórsins til 1. mars nk. með því að bjóða upp á bjór á sama verði og hann var árið 1989. Einnig verður sérstakur bjór bruggaður og kynntur 1. mars, þar sem hægt verður að fylgjast með bruggmeistaranum að störfum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert