Líta á lokunina sem beina árás

Frá Laugarvatni.
Frá Laugarvatni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna harmar þá ákvörðun háskólaráðs Háskóla Íslands að flytja námsbraut í íþrótta- og heilsufræði frá Laugarvatni til Reykjavíkur.

„Við lítum á þessa ákvörðun sem beina árás á háskólasamfélagið á landsbyggðinni,“ segir í tilkynningu stjórnarinnar.

Í henni segir að háskólinn sé lífæð Laugarvatsn og samfélagsins í kring. Augljóst sé að ákvörðunin sé tekin í óþökk kennara, nemenda og sveitarfélaga á Suðurlandi.

„Við tökum heilshugar undir orð forsætisráðherra, að beina þurfi fjármunum til háskóla og menntastofnanna á landsbyggðinni, þar sem ljóst er að Háskóli Íslands er ekki að sinna því hlutverki sínu. Við tökum einnig undir orð þingmanna kjördæmisins hvað varðar flutning námsbrautarinnar og áhyggjur þeirra um framtíð þess samfélags sem byggst hefur upp í kringum námið á Laugarvatni. Þingmenn hafa sýnt vilja sinn í því að berjast fyrir bættum stuðningi við námsbrautina en ljóst er að háskólaráð og rektor hafa ekki nokkurn áhuga á aðstoð þeirra.“

Segir stjórnin að Háskóli Íslands eigi ekki einungis að þjóna þeim sem að búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig landsbyggðinni.

„Mikilvægt er að halda í 84 ára sögu íþróttakennaraháskólans á Laugarvatni og er það óskiljanlegt hvernig Háskóli Íslands getur bundið enda á sögu íþróttakennaranáms á Laugarvatni með þessari ákvörðun.“

Þá hvetur stjórnin háskólaráð til þess að heimsækja Laugarvatn og kynna sér starfsemina sem er þar og í kjölfarið endurskoða ákvörðun sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert