Þjóðvegi lokað vegna snjóflóðs

Lögreglan á Suðurlandi birti tilkynninguna á Fésbókarsíðu sinni.
Lögreglan á Suðurlandi birti tilkynninguna á Fésbókarsíðu sinni.

Þjóðvegur 1 er ófær um Hvalnes- og Þvottárskriður vegna snjóflóðs sem féll þar yfir veginn. Vegfarendur eru hvattir til að kynna sér vel aðstæður áður en farið er um það svæði.

Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu lögreglunnar á Suðurlandi. 

Vegagerðin áformar að opna veginn í fyrramálið um kl. 07.00, en nánari upplýsingar er unnt að fá í upplýsingasíma Vegagerðar 1777 og/eða á Vegagerdin.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert