Þungt haldinn á gjörgæslu

Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann og er lögregla …
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann og er lögregla enn við störf á vettvangi. Morgunblaðið/Eggert

Karlmaðurinn sem slasaðist alvarlega í vinnuslysi í morgun liggur þungt haldinn á gjörgæslu. Slysið varð í húsi við gömlu Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi um klukkan tíu í morgun.

Að sögn lögreglu féllu fiskikör á manninn.

Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann og er lögregla enn við störf á vettvangi.

Frétt mbl.is: Alvarlegt slys í Gufunesi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert