Tilkynnt um flytjendur á Þjóðhátíð

Frá Þjóðhátíð í Herjólfsdal.
Frá Þjóðhátíð í Herjólfsdal. mbl.is/GSH

Hljómsveitirnar Úlfur Úlfur, Agent Fresco ásamt rapparanum Emmsjé Gauta verða meðal flytjenda á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hátíðarnefndinni.

Áður var búið að tilkynna hverjir semja og flytja nýtt Þjóðhátíðarlag. Halldór Gunnar Pálsson kórstjóri Fjallabræðra semur lagið og nýstofnuð hljómsveit hans og Sverris Bergmanns, Albatross, flytur lagið ásamt Friðriki Dór.

Í dag hefst forsala á Þjóðhátíð í Eyjum á vefsíðunni dalurinn.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert