LED-ljós ekki lögleg hér á landi

LED-ljós eru ólögleg á Íslandi.
LED-ljós eru ólögleg á Íslandi.

ATH! Leiðrétting

Sam­göngu­stofa sendi í gær frá sér til­kynn­ingu þar sem eig­end­um nýrra bíla er bent á að svo­kölluð LED-ljós, sem eru í mörg­um nýj­um bíl­um og fara sjálf­krafa í gang þegar kveikt er á bíln­um, eru ekki hæf til akst­urs.

„Margir ökumenn nýrra bifreiða eru ólöglegir við akstur sökum ljósaskorts. Margar nýjar bifreiðar eru búnar ljósum sem kvikna þegar bíllinn er ræstur og í fyrstu má halda að um sé að ræða ökuljós en sú er ekki raunin,“ segir í tilkynningu frá Samgöngustofu.

Er á það bent að ökumenn verði sjálfir að sjá til þess að ljós sem eru hæf til aksturs séu kveikt. „Þessi ljósabúnaður kallast dagljós (LED ljós) og er leyfður á Evrópska efnahagssvæðinu og af þeim sökum er heimilt að flytja slíkar bifreiðar inn til Íslands. Það gegnir hinsvegar öðru máli um notkun þessa búnaðar hér á landi. Það er ljósaskylda hér á landi - allan sólarhringinn og allan ársins hring - og því þarf ökumaður að gæta þess að ökuljósin, ekki stöðuljósin, séu kveikt á meðan á akstri stendur,“ segir í tilkynningunni.

Uppfært og leiðrétt kl. 13:47

Í frétt Morg­un­blaðsins, sem birt var á mbl.is í morg­un, kom fram að LED-ljós væru ekki lög­leg hér á landi en sá mis­skiln­ing­ur leiðrétt­ist hér með.

Hér má lesa nýja leiðrétta útgáfu fréttarinnar:

Dagljósin duga ekki við akstur

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert