Slasaðist um borð í togara

mbl.is/Hjörtur

Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á Granda fyrr í dag en þar hafði maður um borð togara fallið í stiga og slasast. Að sögn varðstjóra voru sjúkrabílar, körfubíll og dælubíll kallaðir út en hífa þurfti manninn frá borði.

Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um slysið eða ástand mannsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert