Vann tæpar 50 milljónir

Einn var með allar tölurnar réttar í lottóútdrætti kvöldins. Vinningshafinn, sem keypti miðann í Happahúsinu í Kringlunni, er hvorki meira né minna en 48,8 milljónum krónum ríkari.

Sex skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hver 105.140 kr. í sinn hlut.

Einn var með allar Jókertölurnar í réttri röð og fær hann fyrir það tvær milljónir króna.

Fimm unnu 100.000 kr. í Jókernum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert