Ítölsk kona liggur á gjörgæsludeild

Ferðamennirnir voru fluttir með þyrlu á Landspítalann í dag.
Ferðamennirnir voru fluttir með þyrlu á Landspítalann í dag. mbl.is/Ómar

Ítölsk kona liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir bílveltu skammt frá Stykkishólmi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum er konan með alvarlega áverka en líðan hennar er stöðug.

Tveir aðrir ítalskir ferðamenn voru með henni í bílnum. Þeir liggja einnig á Landspítalanum en fengu ekki jafn alvarlega áverka.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar lenti um hálfsexleytið í dag hjá Land­spít­al­an­um með ferðamenn­ina.

Frétt mbl.is: Ferðamennirnir alvarlega slasaðir 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert