Matsskýrsla um virkjun í nágrenni Geysis

Horft til norðurs að fyrirhuguðu stíflustæði. Lón yrði í farvegi …
Horft til norðurs að fyrirhuguðu stíflustæði. Lón yrði í farvegi árinnar ofan stíflu. Mynd/Mannvit

Orkufyrirtækið HS Orka áformar að reisa allt að 9,9 megavatta rennslisvirkjun, Brúarvirkjun, í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum, austan við Geysi í Haukadal. Gert er ráð fyrir að flatarmál lóns yrði um átta hektarar við venjulegt rekstrarvatnsborð.

Í frummatsskýrslu sem verkfræðistofan Mannvit gerði fyrir HS Orku og var birt í dag kemur fram að áhrif af framkvæmdinni á ásýnd frá frístundabyggð á svæðinu eru talin talsvert neikvæð. Það sama á við um áhrif á birkiskóg sem þarf að eyða á fjögurra hektara svæði, votlendi og ónæði vegna umferðar, hávaða og rykmyndunar á framkvæmdatíma.

Yfirlitsmynd sem sýnir áætlaðan virkjanakost í Biskupstungum.
Yfirlitsmynd sem sýnir áætlaðan virkjanakost í Biskupstungum. Mynd/Mannvit

Mannvit metur breytingar á ásýnd frá helstu ferðamannastöðum óverulega sem og áhrif á fuglalíf, jarðfræði og jarðmyndanir.

Frummatsskýrsla Mannvits í heild sinni

Áhrif á önnur gróðurlendi sem raskast eru metin nokkuð neikvæð þar sem umfang þeirra er tiltölulega lítið. Þá eru áhrif á vatnasvið og á veiði og fiskræktarmöguleika laxfiska vera nokkuð neikvæð.

Fyrirhugað stíflu- og lónstæði.
Fyrirhugað stíflu- og lónstæði. Mynd/Mannvit

Tungufljót er ein af þverám Hvítár í Árnessýslu. Fljótið er um 40 kílómetra langt og vatnasvið þess er um 720 kílómetrar. Efst heitir áin Ásbrandsá en Tungufljót þar sem Litla-Grjótá fellur til hennar. Til skamms tíma átti Tungufljót upptök sín í Sandvatni en í því gætir jökulvatns frá Langjökli. Árið 1986 var rennsli úr Sandvatni stíflað til Ásbrandsárinnar og öllu jökulvatni veitt um Sandá í Hvítá. Hefur Tungufljótið verið að mestu hrein bergvatnsá með lindarvatnsuppruna síðan.

Í skýrslunni kemur fram að virkjunin verði tengd með 33 kílóvolta jarðstreng inn á kerfi RARIK sem rekur dreifikerfið á svæðinu. Ráðgert er að leggja jarðstrenginn í jörðu um 20 km leið að Reykholti, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Fyrirhuguð lega jarðstrengs frá virkjuninni.
Fyrirhuguð lega jarðstrengs frá virkjuninni. Mynd/Mannvit
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert