Fólksbifreið ekið á staur

mbl.is/Hjörtur

Fólksbifreið var ekið á ljósastaur við Nýbýlaveg í Kópavogi á ellefta tímanum í kvöld. Lögreglan lokaði veginum um tíma vegna slyssins og voru dælubíll og tveir sjúkrabílar sendir á vettvang. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og var hann fluttur á slysadeild. 

Bifreiðin skemmdist mikið en ekki þurfti að beita klippum til að ná ökumanninum úr henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert