Maðurinn sem slasaðist í vinnuslysi látinn

Karl­maður­inn sem slasaðist al­var­lega í vinnu­slysi í síðustu viku, er fiskikör féllu á hann við gömlu Áburðar­verk­smiðjuna í Gufu­nesi, er látinn.

Þetta staðfestir Haukur Björnsson forstjóri Íslenska gámafélagsins. „Hugur okkar er hjá honum, hans aðstandendum og okkar starfsfólki,“ segir  Haukur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert