Ferðamálasamtök Íslands lögð niður

Ferðamenn á Geysissvæðinu.
Ferðamenn á Geysissvæðinu.

Ferðamálasamtök Íslands hafa verið lögð niður. Þetta var ákveðið á aðalfundi samtakanna í liðinni viku.

Ferðamálasamtök Íslands hafa verið samstarfsvettvangur átta landhlutasamtaka sem hafa unnið að framgangi ferðamála hvert á sínu svæði.

„Tilgangur og markmið þessara samtaka hafa verið í umræðunni í vel á annað ár. Þau stóðu að baki stofnun markaðsstofu landshlutanna þar sem fyrirtækin eru dregin með virkari hætti að markaðssetningu og ákvarðatöku í hverjum landshluta fyrir sig,“ segir Ásbjörn Björgvinsson, fráfarandi formaður samtakanna.

Meira og minna sjálfboðavinna

Ferðamálasamtök Íslands hafa verið starfrækt í á þriðja áratug. „Grasrótarvinna og öll markaðssetning ferðaþjónustu fyrir landshlutana hefur meira og minna færst á hendur markaðsstofanna, sem hafa fengið fjármagn til þess undanfarin ár, sem Ferðamálasamtök Íslands hafa ekki haft. Þetta hefur verið meira og minna sjálfboðaliðavinna hjá okkur og er núna orðið barn síns tíma,“ segir Ásbjörn.

„Við vildum sýna gott fordæmi með því að leggja okkur sjálf niður til að einfalda reglukerfið.“

Samþykkt aðalfundar Ferðamálasamtaka Íslands

„Með vísan til þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað innan stjórnar Ferðamálasamtaka Íslands, ályktunar síðasta aðalfundar FSÍ, nýrra áhersla stjórnvalda og atvinnugreinarinnar samþykkir aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands sem haldin er að Geirsgötu 9. Reykjavík föstudaginn 26. febrúar 2016 að slíta starfsemi Ferðamálasamtaka Íslands.

Helsta ástæða þessarar ákvörðunar er stuðningur við markmið stjórnvalda um einföldun á stjórn- og stuðningskerfi atvinnugreinarinnar. Auk þess vill aðalfundurinn stuðla að öflugri grasrótarvinnu í hverjum landshluta með vísan til vaxandi hlutverks Markaðsstofa Landshlutanna og samstarfs þeirra.

Ferðaþjónustan,- stjórn og stuðningskerfi greinarinnar hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár meðal annars með stofnun Íslandsstofu, Stjórnstöðvar ferðaþjónustunnar, breyttum áherslum ferðamálasamtaka í hverjum landshluta og tilkomu Markaðsstofa landshluta. Hlutverk Ferðamálasamtaka Íslands hefur sökum þessa breyst mikið og verkefni sem samtökin hafa unnið að undanfarna áratugi þróast áfram á öðrum og nýjum vettvangi.

Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands leggur áherslu á mikilvægi hlutverks Markaðsstofa landshlutanna sem víðast hvar hafa tekið við mikið af þeim verkefnum sem Ferðamálasamtökin höfðu með höndum og hvetur stjórnvöld til að standa þétt við bakið á Markaðsstofum landshlutanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert