Gæsluvarðhald framlengt í mansalsmáli

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Gæsluvarðhald sakbornings í mansalsmáli í Vík í Mýrdal rann út í dag, en Héraðsdómur Suðurlands féllst á, fyrir stundu, kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um framlengingu gæslavarðhalds um fjórar vikur.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi að rannsókn málsins sé mjög umfangsmikil, mann- og tímafrek. Ransókninni miði vel en þó séu enn margir lausir endar og ógjörningur á þessu stigi að segja til um lok hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert