Heimir Örn boðar forsetaframboð

Heimir Örn Hólmarsson forsetaframbjóðandi
Heimir Örn Hólmarsson forsetaframbjóðandi

Heimir Örn Hólmarsson, rafmagnstæknifræðingur að mennt og með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM), hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands.

Í fréttatilkynningu frá Heimi Erni kemur fram að hann hafi starfað í fluggeiranum í 10 ár í störfum sem hafa í senn verið tæknilega og lagalega krefjandi og öðlast þaðan töluverða reynslu á alþjóðavettvangi.

Vefur framboðsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert