Kviknaði í Íslensku flatbökunni

Mynd af vettvangi við Austurkór þar sem kviknaði í gámi.
Mynd af vettvangi við Austurkór þar sem kviknaði í gámi. Ljósmynd/ Gunnar Geir Jóhannsson

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang þegar eldur kom upp í rafmagnstöflu á veitingastaðnum Íslensku flatbökunni í Bæjarhálsi 2 nú í kvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var það yfirstaðið á fáeinum mínútum en reykræsting á húsnæðinu tók um klukkutíma.

Þá kom eldur upp í stórgámi við vinnuskúr í Austurkór og vinnur slökkvilið nú að því að slökkva eldinn og gekk það greiðlega þegar mbl.is náði tali af slökkviliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert