Sigldi stjórnlaust á Arnarfellið

Arnarfell.
Arnarfell. Ljósmynd/ Anna K. Kristjánsdóttir

Aðfaranótt fimmtudags sigldi vélarvana og stjórnlaust skip á Arnarfellið, eitt af áætlunarskipum Samskipa, er það var á leið sinni frá Cuxhaven til Aarhus um Kílarskurðinn. Engan í áhöfn Arnarfells sakaði og allur farmur skipsins er óskemmdur.

Við skoðun á Arnarfellinu kom í ljós að það mun þarfnast viðgerðar og því þarf að losa allan farm frá borði í Aarhus. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samskipum. Verið er að leita leiða til að fá annað skip til að leysa Arnarfellið af hólmi á meðan viðgerð stendur, en ljóst er að tafir verða á siglingaáætlun Samskipa.

Samskip hvetur viðskiptavini sína til að fylgjast með fréttum á heimasíðum og á þjónustuvef, þar sem nýjustu upplýsingar verða settar inn um leið og þær liggja fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert