„Stutt á milli hláturs og gráts“

Stjörnukonur fagna íslandsmeistaratitlinum í hópfimleikum á heimavelli sínum í Ásgarði. …
Stjörnukonur fagna íslandsmeistaratitlinum í hópfimleikum á heimavelli sínum í Ásgarði. Frá dómnefnd: Myndin sýnir miklar tilfinningar sem fylgja íþróttum. Það er stutt á milli hláturs og gráturs. Myndin er tekin á þann hátt að áhorfandanum finnst hann vera inni í þyrpingunni og upplifir gleðina með stúlkunum. Íþróttamynd ársins 2015: Eggert Jóhannesson

Sýning íslenskra blaðaljósmyndara opnaði í Perlunni í dag. Við opnunina voru nokkrum ljósmyndurum veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2015 en þeirra á meðal var Eggert Jóhannesson, ljósmyndari mbl.is sem átti bestu íþróttamynd ársins.

Samtals voru veitt verðlaun í sjö flokkum en að þessu sinni var það tímaritamynd ársins sem var jafnframt valin Mynd ársins 2014. Hana tók Eyþór Árnason, sjálfstætt starfandi blaðaljósmyndari og er myndin óvenjuleg portraitmynd af barnshafandi konu, fljótandi í vatni.

Aðrir ljósmyndarar sem voru verðlaunaðir voru Kristinn Magnússon sem átti bestu myndir í fréttaflokki og portraitflokki, Haraldur Þór Stefánsson tók bestu umhverfismynd ársins og Heiða Helgadóttir átti bestu mynd í flokki daglegs lífs ásamt því að hafa einnig myndað myndröð ársins 2015.

Sjö dómarar völdu 83 myndir á sýninguna í ár úr 904 innsendum myndum blaðaljósmyndara. Þeir völdu þar að auki sigurmynd í hverjum flokki og mynd ársins.

Dómnefndina í ár skipuðu Hilmar Þór Guðmundsson, Sissa, Íris Dögg Einarsdóttir, Auðunn Níelsson, Torfi Agnarsson, Karl Petersson og formaður dómnefndar var danski fréttaljósmyndarinn Jan Grarup.

Frá dómnefnd: Myndin getur ekki annað en hreyft við áhorfandanum. …
Frá dómnefnd: Myndin getur ekki annað en hreyft við áhorfandanum. Hún er tímalaus og full af orku. Dómnefndin fékk á tilfinninguna að konan væri eins og móðir jörð sem væri annað hvort að sökkva eða rísa upp. Þannig vekur myndin okkur til umhugsunar um það hvernig við komum fram við náttúruna sem er mjög við hæfi á þessum tímum. Tímaritamynd- og mynd ársins 2015: Eyþór Árnason
Myndin er ein af átta myndum úr myndröð sem Heiða …
Myndin er ein af átta myndum úr myndröð sem Heiða tók af íslenskri fjölskyldu sem undirbjó flutning til Noregs. Frá dómnefnd: Myndin er tekin á þann hátt að það er líkt og ljósmyndarinn sé að gægjast inn um dyr sem gerir upplifunina sterkari. Hún er táknræn fyrir það sem er að gerast í heiminum í dag þar sem síminn er það sem virðist skipta fólk mestu máli og persónuleg samskipti líða oft fyrir það. Daglegt líf mynd ársins: Heiða Helgadóttir
Frá Dómnefnd: Myndin lýsir vel ástandinu í heiminum í dag, …
Frá Dómnefnd: Myndin lýsir vel ástandinu í heiminum í dag, snemma morguns, þegar verið er að leiða innflytjendafjölskyldu út í rútu. Óttinn í svip stúlkunnar fremst á myndinni leynir sér ekki og óöryggið hjá allri fjölskyldunni sem er á leið út í óvissuna. Myndin fær áhorfandann til að hugsa um öryggisleysið sem fylgir þessu fólki sem vísað er úr landi í skjóli nætur. Fréttamynd ársins 2015: Kristinn Magnússon
Frá dómnefnd: Ljósmyndarinn nýtir sér samspilið á milli sín og …
Frá dómnefnd: Ljósmyndarinn nýtir sér samspilið á milli sín og módelsins og er glöggur að grípa þau augnablik sem út úr því koma. Það að módelið hylji andlit sitt að hluta sýnir glettnina á milli þeirra tveggja. Portrait mynd ársins 2015: Kristinn Magnússon
Skaftárhlaup 2015 var eitt það mesta í sögunni en þessi …
Skaftárhlaup 2015 var eitt það mesta í sögunni en þessi mynd sýnir kraftinn sem var við Eldvatnsbrúna skammt frá Ytri Ásum. Frá dómnefnd: Myndin sýnir mikla dramatík og kraft náttúrunnar. Persónan á myndinni gefur áhorfandanum viðmið sem gerir upplifun hans enn meiri. Myndvinnslan hæfir myndinni einstaklega vel. Umhverfismynd ársins 2015: Haraldur Þór Stefánsson
Frá dónmefnd: Serían sýnir á mjög raunsæjan hátt hvernig hestaréttir …
Frá dónmefnd: Serían sýnir á mjög raunsæjan hátt hvernig hestaréttir eru. Ljósmyndarinn sýnir okkur mismunandi vinkla sem fær áhorfandann til að finnast eins og hann sé á staðnum. Myndirnar eru fallega unnar og sagan er fjölbreytileg. Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
Myndröð ársins 2015: Heiða Helgadóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert