Sunna Ósk fékk blaðamannaverðlaun ársins

Sunna heimsótti Líbanon og kannaði aðstæður flóttafólks.
Sunna heimsótti Líbanon og kannaði aðstæður flóttafólks. mbl.is

Sunna Ósk Logadóttir, fréttastjóri mbl.is, fékk blaðamannaverðlaun ársins 2015 fyrir umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flóttamenn og starfsmenn flóttamannabúða til að kynna sér aðstæður þeirra flóttamanna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Með umfjöllun sinni, bæði í texta, myndum og myndböndum, kemur Sunna til skila skýrri mynd af hlutskipti þeirra sem tekist hefur að flýja stríðsátökin í Sýrlandi og komast yfir landamærin.

Sérstaklega dregur Sunna upp skýra mynd að aðbúnaði og framtíðarhorfum barna á svæðinu sem eiga erfitt með að skilja af hverju yfirgefa þurfti daglega lífið, vinina og heimilið. Þess í stað lifa þau við örbirgð í flóttamannabúðum þar sem börn eru tekin úr skólum til að vinna og ungar stúlkur eru seldar í hjónaband í mikilli örvæntingu foreldranna þar sem þau reyna að framfleyta fjölskyldunni.

Vönduð umfjöllun Sunnu sýndi skýrt úr hvaða umhverfi og aðstæðum Sýrlenskir flóttamenn á Íslandi koma sem er mikilvæg þekking við móttöku flóttamanna.“

Umfjöllun Sunnu má lesa hér í knippinu Flóttinn frá Sýrlandi til Íslands. Þetta er í annað skipti sem Sunna er tilnefnd til á Blaðamannaverðlaununum en hún hlaut verðlaunin fyrir umfjöllun ársins 2005 fyr­ir grein­ar um rekst­ur og starf­semi Land­spít­ala – há­skóla­sjúkra­húss í kjöl­far sam­ein­ing­ar.

Auk Sunnu var Helgi Bjarnason, blaðamaður Morgunblaðsins tilnefndur fyrir viðtal ársins við Þröst Leó Gunnarsson um sjóslysið úti af Aðalvík í júlí í fyrrasumar.

Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Perlunni af Blaðamannafélagi Íslands en í Perlunni stendur nú yfir sýning á vegum Blaðljósmyndarafélags Íslands, BLÍ.

Aðrir verðlaunahafar á Blaðamannaverðlaununum voru:

Snærós Sindradóttir á Fréttablaðinu fyrir viðtal ársins við Einar Zeppelin Hildarson um örlagadaginn þar sem móðir hans varð systur hans að bana. 

Umfjöllun ársins áttu liðsmenn Ríkisútvarpsins, Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos fyrir yfirgripsmikla umfjöllun um erfiða ferð flóttamanna í leit að öryggi.

Þá hlaut Magnús Halldórsson á Kjarnanum verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins vegna ítarlegrar umfjöllunar um sölu á hlutum Landsbankans í Borgun í lokuðu söluferli.

Allar tilnefningarnar og rökstuðning með þeim má sjá hér að neðan.

Viðtal ársins 2015

Helgi Bjarnason, Morgunblaðinu.

Fyrir viðtal við Þröst Leó Gunnarsson um sjóslysið úti af Aðalvík í júlí í fyrrasumar. Þresti Leó tókst fyrir snarræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björgunartæki brugðust gersamlega og fær Helgi einstæðar lýsingar Þrastar Leó á hugarástandi  þremenninganna á meðan þeir biðu björgunar.

Reynir Traustason, Stundinni.

Fyrir viðtal við Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðing sem sökuð var um manndráp af gáleysi. Reynir gerir lífshlaupi Ástu Kristínar góð skil og fær viðmælanda til að tala mjög opinskátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að viðhalda lífsviljanum.

Snærós Sindradóttir, Fréttablaðinu.

Fyrir viðtal við Einar Zeppelin Hildarson, ungan mann, sem á að baki afar erfiða lífsreynslu. Einar segir á einlægan hátt frá örlagadeginum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slasaður frá hildarleiknum. Snærós segir áhrifamikla sögu manns og dregur fram mikla þrautseigju, góða mannkosti og kærleika.

 

Umfjöllun ársins 2015

Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, fréttastofu RÚV. 

Fyrir umfjöllun um flóttamannavandann sem geisar í Evrópu. Með innlendu sjónarhorni á björgunarstörf áhafnar Týs á Miðjarðarhafi og viðtölum við fórnarlömb á vergangi í Ungverjalandi og Líbanon fengu landsmenn mikilsverða innsýn inn í erfiða ferð flóttamanna í leit að öryggi.

Helgi Seljan, Kastljós RÚV

Fyrir umfjöllun um nauðganir, áreitni og ofbeldi gagnvart þroskahömluðum konum. Ljóstrað var upp um sinnuleysi yfirvalda sem héldu ekki hlífiskildi yfir konunum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og hunsuðu kvartanir. Af virðingu og með áhrifaríkum hætti var saga kvennanna sögð og sjónarmiði þeirra komið á framfæri.

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu.

Fyrir ítarlega umfjöllun um mansal þar sem fjallað var um umfang og einkenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerðaráætlun stjórnvalda. Fréttaskýringaröð þeirra varpaði ljósi á vaxandi mansalsvanda hér á landi þar sem einstaklingar eru misnotaðir í kynferðislegum tilgangi, til nauðungarvinnu eða í glæpastarfsemi.

Blaðamannaverðlaun ársins 2015

Hörður Ægisson, DV.
Fyrir skýra og greinagóða umfjöllun um slitabú föllnu bankana, vogunarsjóðina sem þá keyptu sem og útgöngusamninga þeirra við íslensk stjórnvöld. Hörður hefur upplýst stöðu mála af djúpri þekkingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóðarbúið.

Ingibjörg Kjartansdóttir, Stundinni.
Fyrir fjölbreytta og mikilvæga umfjöllun um kynbundið ofbeldi. Í fjölmörgum greinum gaf Ingibjörg þolendum kynbundins ofbeldis og kynferðisbrota vettvang að tjá sig um sína upplifun af brotunum, upplýsti um hve víða í samfélaginu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórnarlömb að leita réttlætis vegna þeirra

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðið/mbl.is.
Fyrir áhrifamikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flóttamenn og starfsmenn flóttamannabúða til að kynna sér aðstæður þeirra flóttamanna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2015

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Stundinni.
Fyrir afhjúpandi umfjöllun sína um fjárhagsleg tengsl Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra og eignarhaldsfélags hans OG Capital við fyrirtækið Orka Energy. Í ljós komu verulegir hagsmunaárekstrar vegna samstarfssamnings íslenskra og kínverskra stjórnvalda í orkumálum sem Orka Energy var aðili að og ráðherrann ritaði undir.

Kolbeinn Tumi Daðason  365 miðlum.
Fyrir  uppljóstrandi umfjöllun um óánægju lögreglumanna með störf lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild og alvarlegar ásakanir samstarfsfélaga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkniefnaheiminn. Upphaf umfjöllunarinnar var tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem  fór út um þúfur.

Magnús Halldórsson  Kjarnanum.
Fyrir ítarlega umfjöllun um sölu á hlutum Landsbankans í Borgun í lokuðu söluferli og vísbendingar um að hlutur Landsbankans hafi verið seldur á undirverði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hagsmunum eigenda sem er almenningur í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert