Snjóflóðahætta í Hvalnesskriðum

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Vegurinn um Hvalnesskriður verður lokaður í kvöld og nótt vegna snjóflóðahættu samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Hálka er á Reykjanesbraut og hálkublettir á höfuðborgarsvæðinu. Hálka er einnig á Hellisheiði og Þrengslum og hálka, hálkublettir eða snjóþekja mjög víða á Suðurlandi. Þæfingsfærð er í Grafningi.

Vestanlands er hálka, hálkublettir og einhver snjóþekja. Hálka eða hálkublettir er á flestum leiðum á Vestfjörðum. Snjóþekja, hálka og hálkublettir eru á Norðurlandi, sumstaðar éljagangur.

Hálka er víða á Austurlandi og einnig éljagangur. Lokað er um Hvalnesskriður en annars er hálka eða hálkublettir á nokkrum köflum með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert