BHM kallar eftir nýju launakerfi

Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM og Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM
Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM og Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM mbl.is/Styrmir Kári

Félagsmenn Bandalags háskólamanna (BHM) hjá sveitarfélögunum hafa verið samningslausir í rúmt hálft ár en kjaraviðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga hafa dregist úr hömlu. Fram kemur í tilkynningu BHM að þungur tónn sé í fólki sem nú íhugar aðgerðir.

„Ofan á þetta bætist að sífellt erfiðara verður að fá háskólamenntaða sérfræðinga til starfa í sveitarfélögunum. Ef ekki verður gripið í taumana er grunnþjónusta sveitarfélaganna í hættu,“ segir í tilkynningu BHM.

Er þar launakerfi sveitarfélaganna sagt gallað og ógagnsætt. „Fastar yfirvinnugreiðslur hafa árum saman verið notaðar til að bæta upp mun lægri grunnlaun en hjá öðrum opinberum aðilum, hvað þá á almennum vinnumarkaði,“ en þessu vilja aðildarfélög BHM fá breytt.

„Þau hafa lagt fram tillögur til lausnar sem byggja á breyttri samsetningu launa og fela í sér sáralítinn kostnað. BHM hvetur sveitarfélögin til að grípa tækifærið núna, standa með starfsfólki sínu og styrkja þannig stöðu sína á vinnumarkaði. Upptaka nýs og betra launakerfis má ekki bíða lengur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert