Fórnarlambið enn í öndunarvél

Stúd­entag­arðar við Sæ­mund­ar­götu
Stúd­entag­arðar við Sæ­mund­ar­götu mbl.is/Styrmir Kári

Maðurinn sem stunginn var með hnífi fyrir utan stúdentagarðana við Sæmundargötu í Reykjavík aðfaranótt sunnudags er enn þungt haldinn. Er honum haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann gekkst undir aðgerð eftir komuna á sjúkrahús.

Árásarmaðurinn hefur játað verknaðinn en hann veitti fórnarlambi sínu stunguáverka í bakið.

Menn­irn­ir eru vin­ir og báðir fædd­ir 1989 en svo virðist sem ein­hver ágrein­ing­ur hafi komið upp á milli þeirra. Árás­armaður­inn mun sæta gæslu­v­arðhaldi til 9. mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert