Ákært í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis

Ákærðir í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, …
Ákærðir í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrrum framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, auk þeirra Jónasar Guðmundssonar, Valgarðs Más Valgarðssonar og Péturs Jónassonar. mbl.is/Frikki

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis, en þar er ákært fyrir meinta markaðsmisnotkun fyrir hrun bankans. Málið verður þingfest 15. apríl næstkomandi, en málið er komið á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum mbl.is er bæði ákært fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik.

Ákærðir í málinu samkvæmt vef héraðsdóms eru Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrrum framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, auk þeirra Jónasar Guðmundssonar, Valgarðs Más Valgarðssonar og Péturs Jónassonar. Saksóknari í málinu er Björn Þorvaldsson og dómstjóri er Arngrímur Ísberg. Hafa þeir Lárus og Jóhannes áður fengið dóma fyrir önnur hrunmál.

Héraðssaksóknari hefur haft málið til rannsóknar undanfarin ár, en henni þess lauk seint á síðasta ári. Hefur málið síðan þá verið í ákæruferli síðan, en þá er meðal annars lagt mat á hvort ákært verði í því eður ei.

Lárus Welding og Jóhannes Baldursson fyrir miðri mynd. Þeir hafa …
Lárus Welding og Jóhannes Baldursson fyrir miðri mynd. Þeir hafa áður hlotið dóma í svokölluðum hrunmálum og eru báðir ákærðir í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis. Eggert Jóhannesson

Embætti héraðssaksóknara, sem áður hét embætti sérstaks saksóknara, hefur áður ákært fyrir markaðsmisnotkun hjá bæði Landsbankanum og Kaupþingi. Voru flest­ir ákærðu sak­felld­ir í báðum mál­un­um í héraðsdómi. Landsbankamálið var flutt fyrir Hæstarétti í janúar og voru þá allir ákærðu sakfelldir. Enn er ekki kom­in tíma­setn­ing á Kaupþings­málið, en það var flutt í héraði síðasta vor.

Lárus áður fengið 5 ára dóm

Lár­us var dæmd­ur í fimm ára fang­elsi í Stím-mál­inu svo­kallaða fyr­ir umboðssvik. Jó­hann­es sem var fram­kvæmda­stjóri markaðsviðskipta Glitn­is var dæmd­ur í 2 ára fang­elsi í mál­inu, einnig fyr­ir umboðssvik.

Lár­us hafði áður verið sýknaður tveim­ur mál­um, Vafn­ings­mál­inu og Aur­um-mál­inu. Lár­us hafði verið dæmd­ur í héraði í 9 mánaða fang­elsi í Vafn­ings­mál­inu, en Hæstirétt­ur sýknaði hann svo. Í Aur­um-mál­inu var hann sýknaður ásamt öðrum ákærðu, en Hæstirétt­ur ógilti niður­stöðu héraðsdóms í því máli og verður málið aft­ur tekið fyr­ir á þessu ári.

Jó­hann­es hlaut áður dóm í BK-44 mál­inu svo­kallaða, en í héraðsdómi fékk hann fimm ára fang­elsi, sem Hæstirétt­ur mildaði svo niður í þriggja ára fang­elsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert