Stóraukin veitingasala í Leifsstöð

Mikil fjölgun ferða- manna hefur áhrif í veitingasölunni.
Mikil fjölgun ferða- manna hefur áhrif í veitingasölunni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Salan á veitingastöðum Lagardére Travel Retail (LTR) á Keflavíkurflugvelli er mun meiri í ársbyrjun en sömu mánuði í fyrra.

Fyrirtækið auglýsir nú eftir 50 starfsmönnum og áætlar Margrét Mekkín, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs LTR, að 200 manns muni starfa hjá félaginu í sumar.

Sömu sögu er að segja frá Elko og Joe & the Juice. Þar hefur salan líka aukist mikið á fyrstu mánuðum ársins frá fyrra ári, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert