Ógnandi maður með hníf á Landspítalanum

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Lögreglan var kölluð út skömmu eftir klukkan 8 í morgun vegna manns á þrítugsaldri sem hafði í hótunum við öryggisvörð á Landspítalanum við Hringbraut auk þess sem hann ógnaði honum með hnífi.

Vann maðurinn einnig skemmdir á innanstokksmunum. Er hann sagður hafa verið í talsvert annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert