Vel gekk að slökkva eldinn

Frá Krummahólum í kvöld.
Frá Krummahólum í kvöld. mbl.is/Golli

Vel gekk að slökkva eldinn sem kom upp í Krummahólum í Reykjavík í dag að sögn slökkviliðsins. Tilkynning um eldinn barst slökkviliðinu klukkan 19:20 og búið var að ráða niðurlögum hans klukkan 19:36.

Stutt læknisskoðun var framkvæmd á fimm manns sem höfðu fengið einhvern reyk ofan í sig, en enginn var fluttur á spítala. 

Töluverður eldur var í einni íbúð í húsinu en eldsupptök eru ókunn. Málið er nú á borði lögreglunnar.

Sjá frétt mbl.is: Eldur í Krummahólum

Frá Krummahólum í kvöld.
Frá Krummahólum í kvöld. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert