Einbýlishús í Skerjafirði til sölu á 190 milljónir króna

Loftmynd af byggðinni í Skerjafirði, þar sem byggingum á fyrirhugaðri …
Loftmynd af byggðinni í Skerjafirði, þar sem byggingum á fyrirhugaðri íbúðarbyggð við austurendann hefur verið bætt við. Samsett mynd/Prýðifélagið Skjöldur

Fasteignasalan Eignamiðlun auglýsti á dögunum til sölu einbýlishús á 190 milljónir króna.

Húsið er um 450 fermetrar að stærð og stendur við sjávarsíðuna í Skerjafirði, en það var byggt árið 1983.

„Það hafa verið að seljast eignir á þessu bili þótt þær séu ekki margar. Þetta eru tölur sem við höfum séð áður fyrir eign af þessari stærð og á þessum stað. Það er alltaf viss markaður fyrir þessar eignir,“ segir Kjartan Hallgeirsson, fasteignasali hjá Eignamiðlun, í Morgunblaðinu í dag.

 Hér er hægt að skoða myndir og upplýsingar um húsið 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert