Sema Erla býður sig fram til varaformanns

Sema Erla Serdar gefur kost á sér í embætti varaformanns …
Sema Erla Serdar gefur kost á sér í embætti varaformanns Samfylkingarinnar.

Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem fram fer í júní n.k. Sema Erla er 29 ára stjórnmálafræðingur með meistaragráðu í Evrópufræðum og Evrópurétti frá Edinborgarháskóla. Hún er í dag formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Í yfirlýsingu Semu til fjölmiðla segir að hún vilji leggja sitt af mörkum til þess að tryggja að Samfylkingin skipi sér áfram fremst í flokki þegar kemur að baráttunni fyrir samfélagi sem byggir á grunngildum jafnaðarmanna um frelsi, jafnrétti og samstöðu.

Hún vilji stuðla að því að Samfylkinginn haldi áfram baráttunni fyrir jöfnuði, réttlæti og velferð, m.a. með áherslu á uppbyggingu heilbrigðiskerfisins, aðgengilegri húnsæðismarkað, málefni ungra- og barnafjölskyldna sem og öryrkja og aldraðra.

Yfirlýsingu Semu má lesa í heild sinni hér að neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert