Félaginu aldrei haldið leyndu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Sigurlaug Pálsdóttir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Sigurlaug Pálsdóttir Af vef Framsóknarflokksins

Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, á erlent félag sem hún notar til að halda utan um fjölskylduarf sinn. Í færslu á Facebook-síðu sinni fer hún yfir stofnun félagsins og skattamál sín. Segir hún að ef fólk vilji endilega baktala hana sé best að hafa staðreyndirnar á hreinu og hún hafi aldrei haldið tilvist félagsins leyndri.

Í færslunni kemur fram að félagið heiti Wintris Inc. og sé erlent þar sem þau Sigmundur höfðu búið í Bretlandi þegar það var stofnað. Óljóst var hvort þau myndu búa þar eða flytja til Danmerkur.

„Félagið var stofnað til að halda utan um afrakstur sölu á hlut mínum í fjölskyldufyrirtækinu og bankinn sem ég leitaði til taldi einfaldast að stofna erlent félag um eignirnar svo þær væru vistaðar í alþjóðlegu umhverfi og að auðvelt yrði að nálgast þær hvar svo sem búseta okkar yrði.

Ég lét bankanum eftir framkvæmdina en gerði það að skilyrði að allir skattar væru greiddir strax á Íslandi. Það var því strax gerð grein fyrir öllum tekjum af sölunni og félagið hefur því frá upphafi verið skráð 100% í eigu minni á Íslandi, verið talið fram á skattframtölunum okkar Sigmundar hér heima og allir skattar verið greiddir samkvæmt því. Tilvist félagsins hefur því aldrei verið leynt. Auk þess hafa skattgreiðslurnar komið fram reglulega í blöðunum þegar álagningarskrárnar eru birtar. En þó við séum samsköttuð eru eignirnar samt sem áður mínar og eru skráðar í samræmi við það.  

KPMG hefur haldið utan um skattamálin fyrir mig og mér hefur frá upphafi verið mjög mikilvægt að þau séu í fullkomnu lagi. Það var því aldrei frestað neinum skattgreiðslum eða neitt þess háttar þó að möguleikar væru til þess samkvæmt lögum,“ skrifar Sigurlaug.

Þegar Anna Sigurlaug og Sigmundur ákváðu að ganga í hjónaband þurfti að fara yfir ýmis mál, meðal annars fjárhagsleg.

„Bankinn minn úti hafði gengið út frá því að við værum hjón og ættum félagið til helminga. Það leiðréttum við á einfaldan hátt árið 2009 um leið og við gengum frá því að allt væri í lagi varðandi skiptingu fjármála okkar fyrir brúðkaupið. Félagið var því frá upphafi rétt skráð á Íslandi og hélt utan um séreign mína. Skráningin úti og leiðrétting hennar hafði því engin eiginleg áhrif.

Ef þetta er ekki nóg fyrir einhverja þá er ég líka undir sérstöku eftirliti skv. EES reglum til að tryggja rétt skattskil þar sem gilda sérstaklega strangar reglur um þá sem tengjast stjórnmálamönnum. Þar sem ég er ekki sérfræðingur í viðskiptum þá hef ég áfram haft fjölskylduarfinn í fjárstýringu hjá viðskiptabanka mínum í Bretlandi og þar eru gerðar sérstakar kröfur til mín og þeirra sem mér tengjast vegna þessara reglna. Frá því að Sigmundur byrjaði í stjórnmálum hef ég beðið um að ekki sé fjárfest í íslenskum fyrirtækjum til að forðast árekstra vegna þess,“ skrifar Anna Sigurlaug.

Hún segist hafa treyst á ráðgjöf fjármálamanna á árunum fyrir hrunið og eins og margir aðrir hafi hún tapað töluverðu fé á bönkunum, „meðal annars vegna þess að þeir fjármögnuðu sig með eignum viðskiptavina sinna. Þar er ég í sömu stöðu og fjöldi annarra Íslendinga. Það er alveg ljóst að ég sit uppi með það tap og hef aldrei gert ráð fyrir að fá það bætt. Ég er engu að síður vel stæð fjárhagslega og hef því enga ástæðu til að kvarta í samfélagi þar sem við höfum horft upp á marga takast á við mikla erfiðleika.

Ég vinn ekki við pólitík og Sigmundur ekki við fjárfestingar. Við höfum haft mjög skýra reglu á því hvernig við aðskiljum þessa hluti, bæði gagnvart stjórnmálastarfinu og gagnvart okkar einkalífi. En augljóslega styðjum við hvort annað eins og hjón gera.

Ég veit að í pólitíkinni og umræðunni í kringum hana er allt gert tortryggilegt og í því andrúmslofti sem er í dag er það mjög auðvelt, ekki síst þegar kemur að fjármálum. Þess vegna er bara ágætt að þetta sé allt skýrt. 

Gefum nú Gróu á leiti smá frí. Er ekki betra að beina orkunni í að tala um eitthvað sem skiptir raunverulega máli? Það er af nógu að taka og hvort sem við erum sammála eða ósammála þá er gott samtal alltaf líklegra til að leiða til einhvers góðs en baknag um samborgarana,“ skrifar Anna Sigurlaug að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert