Játaði á sig íkveikjuna

Stórtjón varð í eldsvoðanum við Grettisgötu.
Stórtjón varð í eldsvoðanum við Grettisgötu. mbl.is/Golli

Karlmaður á fertugsaldri hefur játað að hafa kveikt í iðnaðarhúsnæði við Grettisgötu 87 í Reykjavík mánudagskvöldið 7. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu þar sem segir að maðurinn hafi glímt við andleg veikindi og dvelji nú á viðeigandi stofnun.

„Lögreglan handtók einnig annan mann í þágu málsins, en sá var sömuleiðis á vettvangi þegar eldurinn kom upp. Rannsókn lögreglu leiddi hins vegar í ljós að síðarnefndi maðurinn kveikti ekki eldinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert