Sjúkraliðar samþykktu verkfallsboðun

Sjúkraliðar á baráttufundi.
Sjúkraliðar á baráttufundi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjúkraliðar sem starfa hjá sveitarfélögunum fara í verkfall 4. apríl verði ekki búið að semja þá. Þetta kemur fram á vef Sjúkraliðafélags Íslands.

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls Sjúkraliðafélags Íslands gagnvart þeim sveitarfélögum og öðrum aðilum sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur samningsumboð fyrir var birt á vef félagsins í gær. Meirihluti þeirra sem tóku þátt greiddu atkvæði með verkfalli.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert