Einn fær 278 milljónir

Heppinn Dani var með allar tölur réttar í Víkingalottói kvöldsins og fékk hann rúmlega 278 milljónir í sinn hlut. Íslenski bónusvinningurinn, rúmlega sex milljónir, gekk ekki út.

Enginn var með allar jókertölurnar réttar en fimm voru með fjórar réttar í réttri röð. Hlaut hver og einn hundrað þúsund krónur í sinn hlut.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert